m. hringur
sérstakt reglulegt, hornlaust form eða ferill
DÆMI: hann hljóp tvo hringi í kringum tjörnina
m. ferningur
reglulegt form með 4 horn og hliðar, þar sem allar hliðar eru jafnlangar
m. þríhyrningur
form með þrjú horn og þrjár hliðar
f. ör
sértök táknmynd, lína með oddi á endanum
m. rétthyrningur
ferhyrnt form þar sem öll hornin eru rétt en hliðarnar ekki endilega jafnlangar
f. lína
beint og langt strik
DÆMI: nemandinn skrifaði í aðra hverja línu
f. túpa
hólkur úr plasti eða málmi fyrir kremkennt efni
m. sívalningur
hlutur að lögun eins og tjábolur, holur innan eða ekki