Fituleysin vítamín - Hvert er hlutverk þeirra
Fituleysin vítamín - uppspretta
Er aðallega að finna í matvælum sem innihalda fitu á einhverju formi
Fituleysin vítamín - skortseinkenni allra fituleysanlegra vítamínanna (A, D, E, K)
A-vítamín: er helsta ástæða blindu í heiminum, náttblinda er eitt af fyrstu einkennum. A-vít mikilvægt til að forðast sýkingar vegna hlutverk þekjuvefs sem umlykur allt t.d meltingarveg og lungum og ef það skortir A-vít þá verða frumur óstarfæfar sem leiðir til að bakteríur og vírusar eiga greiðari leið inn í líkamann.
D-vítamín: Skortur á D-vítamíni hægir á myndun próteins sem eykur upptöku kalks í þörmum. Beinkröm hjá börnum, þar sem bein í fótleggjum bogna og rifbein svigna, en meðal fullorðinna og aldraðra lýsir skorturinn sér sem mjúk kalklítil bein og kallast það beinmeyra.
E-vítamín: Lítt þekktur hjá fullorðnum og kemur helst fram í tengslum við sjúkdóma. Sjaldgæfur hjá börnum en lýsir sér með vökvasöfnun, sárum á húð og fækkun rauðra blóðkorna.
K-vítamín: Án K-vítamíns myndast óeðlilegt protein sem ekki getur bundið kalsíum. Aukin hætta á beinbrotum þegar K-vítamín í blóði er lágt.
D-vítamín - fæðutengdar ráðleggingar
D-vítamín -hvernig er D-vítamínhagur (status í blóði) mældur?
Stuðst er við eftirfarandi styrk: 25OHD
- 50 nmól/L: fullnægjandi styrkur 25OHD
- 30-49 nmól/L: ófullnægjandi styrkur 25OHD
- <30 nmól/L: D-vítamínskortur
Til þess að viðhalda styrk á 25OHD í kringum 50 nmól/L þá þurfum við 15 ug/dag
- LI < 2,5 ug/dag
- UL >100 ug/dag
Vatnleysing vítamín - hvert er hlutverk þeirra?
Vatnleysanleg vítamín frásogast auðveldlega í þarminum en skiljast líka auðveldlega út um nýru.
B-vítamín taka öll á einn eða annan hátt þátt í orkuefnaskptum (Kóensím). Nokkur B-vítamín mikilvæg fyrir eðlilega blóðmyndun (fólsýra, B12 og B6).
Hitameðferð, ljós og geislun eða geymsla getur dregið verulega úr magni sumra vatnleysanlegra vítamína í mat (á sérstaklega við um C-vítamín, þíamín og ríbóflavín)
Vatnleysin vítamín - uppspretta
Vatnleysin vítamín - skortseinkenni allra vítamínanna (B og C)
Steinefni - hlutverk
Steinefni eru ólífræn efni sem finnast í líkamanum í magni sem er meira en 5g (líkaminn þarf meira en 100mg/dag).
Steinefni á jónuðu formi taka öll þátt í vatns- og elektrólýtajafnvægi líkamans.
Steinefni eru nauðsynleg einkum af þremur ástæðum: til að byggja upp sterk bein og tennur, til að stjórna vökvajafnvægi líkamans og til að umbreyta matnum sem við borðum í orku
Steinefni - uppsprettur
Steinefni eru í mismunandi magni í mismunandi fæðu, eins og kjöti, korni og kornvörum, fiski, mjólk og mjólkurvörum, grænmeti, ávöxtum (einkum þurrkuðum ávöxtum) og hnetum.
Steinefni - skortseinkenni
- Natríum
- Kalíum
- Kalk
- Magnesíum
Kalk - tenging við ráðleggingar um fæðuval og D-vítamín
Mjólkurvörur innihalda töluvert magn af kalki.
Lítil kalkneysla, samhliða lágu gildi D-vítamíns í blóði, tengist minni beinþéttni, minni lífslíkum og auknum líkum á byltum hjá öldruðum.
Of mikil kalkneysla tengist auknum líkum á krabbameini í blöðruhálskirtli
Snefilefni - hlutverk
Eru ólífræn efni sem finnast í minna magni í líkamanum.
Taka öll þátt í ensímvirkni eða eru hlutar annarra proteina eða hormóna.
Fjölbreytt fæða besta leiðin til að fullnægja þörf.
Snefilefni - uppspretta
Magn snefilefna (og eftir atvikum annarra efna) í mat fer eftir
magni í jarðvegi og æti dýra
* Dæmi: Selen, joð og omega 3 fitusýrur
* Magn í fæðu úr jurtaríkinu (og dýraríkinu) getur verið mjög breytilegt
* Fjölbreytt mataræði er besta leiðin til þess að fullnægja þörf
Snefilefni - skortseinkenni
- Járn
- Selen
- Joð
- Sínk
Járn - tenging við ráðleggingar um fæðuval
Járn: á meðgöngu eykst þörf fyrir járn meira en fyrir flest önnur næringarefni. í flestum tilfellum er nóg að bregðast við þessari auknu þörf með því að borða daglega járnríkan mat. í sumum tilfellum er ráðlagt að taka inn aukaskammt af járni.
T.d rautt kjöt og fiskur.
Joð - tenging við ráðleggingar um fæðuval
Stærsti hluti joðs í fæði hér á landi kemur úr mjólkuvörum og fiski.
Joð er fyrst og fremst í fiski, sjávarfiski s.s ýsu og þorski. Joð finnst einnig í mjólk en ungar konur eru að borða minnst af þessu og því geta þær verið með joðskort.
Járnskortblóðleysis - mælingar í blóði sem hægt er að nýta til að meta járnbúskap
Hemóglóbín, járn og ferritín.
- S-ferritín er mælikvarði á birgðirnar.
- Hemoglobin (Hb) og hematocrit (styrkur RBK í blóði) minnka.
- yfirleitt eru nokkrir mælikvarðar notaðir saman við mat á járnbúsakap